28.08.2023
Nemendur í 6. bekk fór í vettvangsferð á sjó á bátnum Húna II. Það eru Hollvinir Húna II. sem standa að ferðunum í samstarfi við Háskólann á Akureyri og fræðslusvið Akureyrarbæjar.
Nemendur fengu að kynnast sjávarútveginum og fræðast um lífríki sjávar á metnaðarfullan hátt, ásamt sögufræðslu um bátinn og ströndina. Nemendur fengu að sjá gömul veiðarfæri og önnur tilheyrandi tól og sagt frá notkun þeirra. Einnig heimsóttu þau skipstjórann í brúnni sem fræddu þau um stjórnun og siglingatæki skipsins.
Mjög skemmtilegur dagur í góðu veðri.
Lesa meira
10.08.2023
Skólasetning Giljaskóla fyrir nemendur í 2. - 10. bekk verður í íþróttasal Giljaskóla þriðjudaginn 22. ágúst kl. 9:00. Gert er ráð fyrir að skólasetning taki hálfa til eina klukkustund. Foreldrar / forráðamenn eru velkomnir. Nemendur 1. bekkjar og foreldrar þeirra verða boðaðir í viðtöl hjá umsjónarkennurum 22. og 23. ágúst. Frístund opnar kl. 9:30 á skólasetningardag fyrir þa
Lesa meira
21.06.2023
Skólinn verður lokaður frá 26. júní til 7. ágúst vegna sumarleyfa.
Lesa meira
09.06.2023
Takk kærlega fyrir samstarfið í ár og takk kærlega fyrir þátttöku ykkar í UNICEF-Hreyfingunni í ár!
Þetta var svo sannarlega frábær söfnun en það söfnuðust 116.883 krónur!
Ykkar framlög munu nýtast UNICEF víðsvegar um heiminn. Við viljum nýta tækifærið og deila með ykkur dæmum um hvað hægt er að gera fyrir upphæðina sem safnaðist!
Lesa meira
26.05.2023
Skólaslit 1. - 9. bekkjar og sérdeildar:
Nemendur mæta í íþróttasal Giljaskóla kl. 9:00 en fara síðan í stofur til að kveðja samnemendur og umsjónarkennara. Gert er ráð fyrir að þetta taki 45 - 60 mín.
Foreldrar / forráðamenn eru velkomnir.
Útskrift 10. bekkjar:
Útskrift 10. bekkjar verður í íþróttasalnum kl. 16:00.
Myndataka af útskriftarnemum og kennurum fer fram í íþróttasalnum fyrir athöfn kl. 15:30. Eftir athöfnina verður kaffi í matsalnum fyrir útskriftarnema og aðstandendur.
Frístund er lokuð þennan dag.
Lesa meira
24.05.2023
Þann 15. maí var haldinn fundur í Háskólanum á Akureyri um mikilvægi samvinnu foreldra fyrir velferð barna. Um var að ræða fræðslufund fyrir foreldra og forsjáraðila barna á vegum landssamtakanna Heimilis og skóla fræðslu- og lýðheilsuráðs Akureyrarbæjar og mennta- og barnamálaráðuneytisins.
Lesa meira
23.05.2023
Í vetur hafa nemendur á miðstigi tekið þátt í samkeppni á vegum Literacy Planet sem ber heitið Word Mania. Þátttakendur úr skólum frá 78 löndum tóku þátt í að efla læsi og lesskilning í ensku og náðu nemendur Giljaskóla 1.sæti í sínum flokki sem er frábær árangur. Í verðlaun fá þau árs aðgang að Literacy Planet fyrir allan skólann sem kemur sér mjög vel fyrir okkar nemendur á næsta ári. Við óskum þeim að sjálfsögðu innilega til hamingju með þetta flotta afrek.
Lesa meira
17.05.2023
Í dag fór fram hreyfing hjá okkur í Giljaskóla til styrktar verkefna UNICEF. Allir þeir sem tóku þátt í hreyfingunni fengu svokallaðan "heimspassa" og límmiðarnir inn í honum eru til marks um hversu marga hringi viðkomandi fór. Þeir sem hétu á nemendur geta lagt inn á þessa söfnunarsíðu hér: https://sofnun.unicef.is/team/giljaskoli-hreyfingin-2023
Þess ber að geta að áheitin eru meira til gamans og
Lesa meira
09.05.2023
Mánudaginn 15. maí kl. 20.15 verður haldinn fundur í Háskólanum á Akureyri um mikilvægi samvinnu foreldra fyrir velferð barna. Um er að ræða fræðslufund fyrir foreldra og forsjáraðila barna á vegum landssamtakanna Heimilis og skóla fræðslu- og lýðheilsuráðs Akureyrarbæjar og mennta- og barnamálaráðuneytisins. Leitað verður svara við spurningum á borð við: Hvernig get ég sem foreldri lagt mitt að mörkum til að
Lesa meira