17.05.2023			
	
		Í dag fór fram hreyfing hjá okkur í Giljaskóla til styrktar verkefna UNICEF.  Allir þeir sem tóku þátt í hreyfingunni fengu svokallaðan "heimspassa" og límmiðarnir inn í honum eru til marks um hversu marga hringi viðkomandi fór. Þeir sem hétu á nemendur geta lagt inn á þessa söfnunarsíðu hér:  https://sofnun.unicef.is/team/giljaskoli-hreyfingin-2023  
Þess ber að geta að áheitin eru meira til gamans og
Lesa meira
		
	 
 
	
		
		
		
				
			
					09.05.2023			
	
		Mánudaginn 15. maí kl. 20.15 verður haldinn fundur í Háskólanum á Akureyri um mikilvægi samvinnu foreldra fyrir velferð barna. Um er að ræða fræðslufund fyrir foreldra og forsjáraðila barna á vegum landssamtakanna Heimilis og skóla fræðslu- og lýðheilsuráðs Akureyrarbæjar og mennta- og barnamálaráðuneytisins. Leitað verður svara við spurningum á borð við: Hvernig get ég sem foreldri lagt mitt að mörkum til að
Lesa meira
		
	 
 
	
		
		
		
				
			
					04.05.2023			
	
		Leikhópurinn Lotta kom til okkar í heimsókn í morgun og voru með söngvasyrpu fyrir nemendur í  1. - 4. bekk. Tvær  ævintýrapersónur voru með atriði úr ævintýraskógi Lottu þar sem sprell, söngur og fjör var í fyrirrúmi. Skemmtu nemendur sér vel og þökkum við foreldrafélaginu kærlega fyrir þessa sýningu. 
Lesa meira
		
	 
 
	
		
		
		
				
			
					04.05.2023			
	
		Fræðslu- og lýðheilsuráð Akureyrarbæjar veitti nemendum og starfsfólki leik-, grunn- og tónlistarskóla Akureyrarbæjar viðurkenningar fyrir framúrskarandi skólastarf, skólaárið 2022-2023. Markmiðið með viðurkenningunum er að vekja sérstaka athygli á því sem vel er gert og hvetja þá sem fyrir valinu verða til þess að halda áfram því góða starfi sem þeir eru að vinna. Viðurkenningin er einnig staðfesting á að viðkomandi nemandi, starfsmaður, skóli
Lesa meira
		
	 
 
	
		
		
		
				
			
					27.04.2023			
	
		Skólahreysti fór fram í Höllinni 27. apríl og voru fjórir fulltrúar frá Giljaskóla sem tóku þátt,  Alís, Óliver, Ragnhildur og Steinar. Stóðu þau sig mjög vel og lentu í 4. sæti. Vel gert !
Hér má sjá þrautir og úrslit á heimasíðunni skolahreysti.is 
Lesa meira
		
	 
 
	
		
		
		
				
			
					27.04.2023			
	
		Adel nemandi í 7. bekk stóð uppi sem sigurvegari í vegglistaverkakeppni Braggaparksins. Hann fær að skreyta vegg í Braggaparkinu og þar með bætast í hóp listamannanna Margeirs Dire, Sigþórs V., Hákons Arnar og Osesh One sem nú þegar eiga verk á staðnum.
Óskum við honum innilega til hamingju.
Lesa meira
		
	 
 
	
		
		
		
				
			
					21.04.2023			
	
		Nokkrir nemendur Giljaskóla tóku þátt í undankeppni Fiðrings í Tjarnaborg á þriðjudagskvöldið. Magnað og áhrifaríkt atriðið Giljaskóla komst áfram og mun keppa í úrslitum ásamt Glerárskóla, Grunnskóla Fjallabyggðar, Þelamerkurskóla, Borgarhólsskóla, Oddeyrarskóla, Brekkuskóla og Síðuskóla. Úrslitakeppnin verður í Hofi þriðjudaginn 25. ágúst kl. 20:00. Búið er að opna fyrir almenna sölu á efra svæði - hér er tengillinn: Fiðringur - almenningur https://tix.is/is/mak/event/15340/fi-ringur-2023/
Lesa meira
		
	 
 
	
		
		
				
			
					29.03.2023			
	
		Fimmtudaginn 30. mars er nemendum í Giljaskóla boðið í Hlíðarfjall. Eldri nemendum stendur einnig til boða að fara í Skautahöllina eða gönguferð. Ekki verður hefðbundin kennsla þennan dag, en valgreinar verða þó kenndar eftir hádegið. Athugið að hjá sumum nemendum er skóla lokið fyrr en venjulega á fimmtudögum.
Allir nemendur í 1.- 4. bekk fara í Hlíðarfjall og mega koma með þotu eða sleða. Þeir geta nýtt sér töfrateppið. Nemendur í þessum árgöngum sem eru færir um að fara sjálfir á skíði / bretti og eiga búnað mega gera það. Nemendur sérdeildar fara allir í skautahöllina og fá foreldrar nánari upplýsingar um fyrirkomulagið frá starfsfólki sérdeildar.
Lesa meira