Nesti

Nemendur þurfa að hafa nesti með sér í skólann sem þeir borða um miðjan morgun.  Ætlast er til að nemendur komi með hollt nesti sem búið er vel um og ætlast er til að umbúðir fari heim með nemendum. Hægt er að kaupa mjólkuráskrift í skólanum í byrjun hvorrar annar. Í boði er léttmjólk sem geymd er í sérstökum mjólkurkæli með skammtara fyrir glös þannig að mjólkin helst ávallt köld og fersk. Nemendur geta einnig komið með drykk í skólann, en eindregið er mælst  til þess að sykruðum drykkjum sé sleppt. Þegar skólinn opnar á morgnana er í boði að fá heitan hafragraut í boði skólans. Nemendur í unglingadeild eiga einnig kost á að fá hafragraut í fyrstu frímínutum á morgnana.

Tilmæli til foreldra um nesti í skólann

Mælst er til þess að börn séu nestuð í skólann í samræmi við ráðleggingar um næringu frá Landlæknisembætti, sjá hér fyrir neðan.

 Einblöðungur um hollt og gott nesti á heimasíðu landlæknisembættisins

Ráðleggingar um mataræði á heimasíðu landlæknisembættisins

Upplýsingar um sykurmagn í vörum á heimasíðu landlæknisembættisins