Útivistardagur 3. febrúar

Þriðjudaginn 3. febrúar er nemendum í Giljaskóla boðið í Hlíðarfjall. Ekki verður hefðbundin kennsla þennan dag, en utanskóla valgreinar verða þó kenndar eftir hádegið. Að þessu sinni er Skautahöllin í boði fyrir nemendur í 5.-10. bekk.

 

Nemendur í 1.-4. bekk mæta í skólann kl.  9:00 (rútur fara 9:30 og skóla lýkur um kl. 12:15 (rútur frá fjalli 11:45) 

Nemendur í 5. -7. bekk mæta í skólann kl. 8:30 (rúta fer 8:45) og skóla lýkur kl. 12:30 (rúta frá fjalli 12:00)- rútur í skautahöll fara 8:45 og heim 11:30.

Nemendur í 8.- 10. bekk mæta í skólann kl. 8:45 (rúta fer 9:00) og skóla lýkur kl: 12:40 (rúta frá fjalli 12:15). skautahöll fara 9:00 og heim 11:45.

 

Nemendur í 1.- 4. bekk mega koma með þotu eða sleða. Þeir geta nýtt sér töfrateppið og Auði. Nemendur í þessum árgöngum sem eru algjörlega færir um að fara sjálfir á skíði / bretti (eða eru í fylgd foreldra) og eiga búnað mega nýta sér sinn búnað og skella sér á skíði/ bretti. Athugið að það er hjálmaskylda í fjallinu og það þarf að leigja hjálm ef hann er ekki til heima (senda á umsj.kennara ef það þarf að leigja hjálm).

Nemendur í 5.- 10. bekk koma með eigin búnað og hjálm. (skíði, bretti, snjóþotu). Foreldrar geta óskað eftir að skólinn leigi búnað, ef ekki er til búnaður á heimilinu. Mikilvægt að láta umsjónarkennara vita um hæð, þyngd, skóstærð, getustig og hjálm ef það þarf að leigja búnað, síðastalagi á mánudaginn 2. febrúar. Skólinn mun halda utan um leigu á búnaði. Lyftur sem verða opnar í Hlíðarfjalli eru Töfrateppið, Hólabraut, Hjallabraut og Fjarkinn. Aðrar lyftur fylgja hefðbundnum opnunartíma Hlíðarfjalls. Ekki er leyfilegt að dvelja áfram í fjallinu. 

Skautahöllin er í boði fyrir nemendur í 5.-10. bekk. Nemendur koma með skautana sína í tösku. Þeir nemendur sem ekki eiga búnað eða geta ekki fengið lánaða, geta fengið að leigja skauta. 

 

Mikilvæg atriði:

  • Áríðandi að foreldrar brýni fyrir börnum sínum að þau gæti að sér hvar sem þau eru og reyni ekki að fara í lyftur og skíðabrautir sem þau ráða ekki við. 

  • Foreldrum er velkomið að hitta okkur uppi í fjalli og vera með okkur þennan dag.

  • Mikilvægt er að muna eftir næringarríku nesti, hjálmi og góða skapinu (kakó tilvalið í kulda).

  • Hægt er að borða nesti í veitingasal Hlíðarfjalls en veitingasala verður ekki opin.

  • Vera klædd til útivistar, merkja vel föt og allan búnað. 

  • Hjálmurinn skiptir höfuðmáli hvort sem barnið er á bretti, sleða eða skíðum. 

  • Lánsbúnaði þarf að skila inn í leiguhús í Hlíðarfjalli eftir notkun. 

  • Samkvæmt veðurspá verður rólegur vindur og hiti rétt um frostmark í fjallinu og því mikilvægt að nemendur komi vel klæddir.

 

Skipulag dagsins:

  • 1. – 4. bekkur.  Mæting í skóla kl. 9:00. 

  • Rútur í Hlíðarfjall fara kl. 9:30 og til baka kl. 11:45. 

  • Matur kl. 12:00. Að loknum mat fara nemendur heim eða í frístund.
    Frístund er einungis fyrir þá sem eru þar skráðir. Stuðningsfulltrúar fylgja nemendum í frístund þar til hefðbundin frístund opnar.

  • 5. – 7. bekkur. Mæting í skóla kl. 8:30. 

Miðstig: Mæting í skóla kl. 08:30. 

  • Rútur í Hlíðarfjall kl. 8:45 og til baka kl. 12:00. Borða við komu í skólann og fara svo heim. 

  • Skautahöll: Rúta kl.8:50- heim kl:11:45 

  • 8.-10. bekkur. Mæting í skóla kl. 8:45. 

  • Rútur í Hlíðarfjall kl. 9:00 og til baka kl. 12:15. Matur við heimkomu.

  • Skautahöll: Rúta kl:8:35 heim frá skautahöll: 11:30

  • Innanskólavalgreinar falla niður en utanskólaval stendur til boða.

 

Vakin er athygli á því að veður og færi getur breyst á skömmum tíma og verða allir að taka mið af því. Upplýsingar varðandi útivistardag má líka finna á heimasíðu Giljaskóla, giljaskoli.is Ef fresta þarf útivistardegi þá verða komnar upplýsingar á heimasíðuna kl. 7:00 á útivistardeginum.

Greiðsla vegna leigu á skíðabúnaði eða skautum ber skólinn kostnað af, því er mikilvægt að leigja ekki búnað að óþarfa.

Með von um góða skemmtun  í Hlíðarfjalli 

Starfsfólk Giljaskóla