Fréttir

Jólakveðja

Hlekkur á jólakveðju
Lesa meira

Ný gjaldskrá

Ný gjaldskrá fyrir skólafæði og Frístund tekur gildi 1. janúar 2019. Hana má finna hér
Lesa meira

Svalasöngur 5. des

Svalasöngur myndband
Lesa meira

Aðalfundur SAMTAKA

Aðalfundur SAMTAKA - Svæðisráð foreldra nemenda í grunnskólum Akureyrar verður haldinn fimmtudaginn 6 desenber 2018 kl. 20:00 í kálfi (fundarsal fræðsluskrifstofu) að Glerárgötu 26, 1 hæð. Kveðja Stjórn SAMTAKA
Lesa meira

ABC hjálparstarf í Giljaskóla

Á næstu dögum munu nemendur fá kynningu á börnunum tveimur sem nemendur og starfsmenn í Giljaskóla styrkja. Frá árinu 2007 höfum við styrkt tvö börn, oftast strák og stelpu. Við höfum frá 2018 styrkt dreng sem heitir Ibrahim Famba Mohamed og býr hann í Uganda. Hann er fæddur árið 2009. Hann býr hjá fátækri, einstæðri móður og þremur systkinum. Móðirin vinnur við garðyrkjustörf og þvær þvotta fyrir fólk til að geta framfleytt þeim. Hún er mjög þakklát fyrir að Ibrahim fái tækifæri til að ganga í skóla. Frá 2016 höfum við styrkt Kevine Jenneth Akello sem býr líka í Uganda. Hún er fædd árið 2008. Hún býr hjá móður sinni og þremur bræðrum, faðir er látinn. Móðir er með HIV og mjög fátæk svo hún hefur ekki
Lesa meira

Desemberdagatal

Í dag 3. desember eiga nemendur í 1. – 4. bekk um land allt kost á að opna glugga í Desemberdagatali Menntamálastofnunar. Gluggarnir eru til 18. desember og verkefnin undir hverjum glugga eru hlaðin skemmtilegum verkefnum í stærðfræði, íslensku og skapandi vinnu. Til gamans má geta þess að verkefnin eru unnin af kennurum hér í Giljaskóla, Önnu Kristínu Arnarsdóttur og Svövu Þ. Hjaltalín en þær leggja upp úr fjölbreytni verkefna og skapandi vinnu með nemendum.
Lesa meira

1. des í Giljaskóla

Samkvæmt venju er 1. desember haldinn hátíðlegur með samkomu á sal og var það gert í dag föstudaginn 30. nóv. Þar rifjum við upp fróðleiksmola varðandi atburði fullveldisdagsins, lesum upp ættjarðarljóð og syngjum nokkur lög . Hér má sjá myndband
Lesa meira

Fögnum fjölbreytileika íslenskunnar: Ritlistarsamkeppni nemenda sem hafa íslensku sem annað mál.

Niðurstöður keppninnar voru tilkynntar við hátíðlega athöfn á Amstsbókasafninu laugardaginn 17. nóvember. Þátttakendur voru alls 18 og komu frá 11 löndum. Allir fengu viðurkenningarskjal, bíómiða og íslenska bók að eigin vali fyrir að senda inn góða og fjölbreytta texta. Aðalverðlaunin voru vetrarkort í Hlíðarfjall og önnur til þriðju verðlaun leikhúsmiðar á sýninguna Gallsteinar afa Gissa (sem sýnd verður eftir áramót). Sérstök verðlaun voru svo þátttaka í Vísindaskóla unga fólksins í HA næsta sumar, fyrir tvo nemendur. Markmið þessa verkefnis var að hvetja börn og unglinga til að nota íslensku á skapandi hátt; að benda þeim á að íslenskan er ekki aðeins skólamál, heldur mál sagna, ljóða og leikrita; hver og einn notar málið eins og hann best getur og á fjölbreyttan hátt. Verðlaunahafar voru: 1. sæti Jana Al Khathib, 7. bekk Giljaskóla, frá Sýrlandi
Lesa meira

Bingó - Bingó

Bingó verður haldið í sal Giljaskóla fimmtudaginn 1. nóvember kl. 18:30 til styrktar skólaferðalagi 10. bekkjar. Spjaldið kostar 500 kr. og flottir vinningar í boði. Léttar veitingar seldar í hléi. Ath. enginn posi. Allir hjartanlega velkomnir. kveðja, nemendur í 10. bekk.
Lesa meira

Fundur með bekkjarfulltrúum

Foreldrafélagið verður með kynningarfund fyrir bekkjarfulltrúa í Giljaskóla mánudaginn 29.okt. kl. 19:30 Þar mun stjórn foreldrafélagsins fara yfir hvað felst í því að vera bekkjarfulltrúi. Þetta verður stuttur fundur svo vonandi komast sem flestir.
Lesa meira