Viðbragðsáætlun við heimsfaraldri

Þar sem búið er að staðfesta COVID-19 smit á Íslandi viljum við benda á viðbragðsáætlun Giljaskóla við heimsfaraldri.

Þar sem þessar fréttir geta valdi ótta og kvíða hjá börnum viljum við minna á að ræða þessi mál af yfirvegun við þau. Við munum halda okkar striki og reiknum með óbreyttu skólahaldi nema að yfirvöld mælist til um annað. Nemendur mega þó búast við að kennarar verði duglegir að minna þau á handþvott og annað sem hindrar smit.

Hér er grein sem fjallar um hvernig gott getur verið að ræða við börn um kórónuveiruna: Svona á að bera sig að þegar rætt er við börn um kórónu­veiruna – Grein eftir Kristínu Ólafsdóttur á visir.is

Hægt er að fylgjast með gangi mála á vef Almannavarna og Landlæknis