Styrkur

Sjónlistakennari Giljaskóla, ásamt sjónlistakennurum Naustaskóla og Grenivíkurskóla, sótti um styrk vegna Barnamenningarhátíðar nú í vor. Verkefnið sem um er að ræða er listasýning sem unnin er út frá sáttmála Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins. Hlaut verkefnið styrk og mun hluti nemenda skólans taka þátt í að útbúa verk á sýninguna. Opnun sýningarinnar verður auglýst síðar ásamt nánari upplýsingum. 

 

https://www.akureyri.is/is/frettir/threttan-verkefni-hljota-styrk