19.06.2019
Giljaskóli hefur að undanförnu lagt aukna áherslu á menntun í upplýsingatækni og það að nýta möguleika tækninýjunga til að auka gæði náms nemenda skólans.
Lesa meira
03.06.2019
Á vordögum 2018 hlaut Giljaskóli styrk á vegum Erasmus Plus til tveggja ára vegna þátttöku í verkefni á þeirra vegum. Umsóknin var unnin af fjórum kennurum skólans, þeim Önnu Maríu Þórhallsdóttur, Astrid Hafsteinsdóttur, Söndru Rebekku og Sigrúnu Magnúsdóttur. Verkefnið sem sótt var um sneri að þátttöku á námskeiði í þvermenningarlegri verkefnastjórnun sem haldið var á Krít dagana 7. - 12. apríl 2019. Markmið námskeiðsins var að þjálfa verkefnastjóra yfir verkefnum á vegum Erasmus Plus og var Giljaskóli eini skólinn á Íslandi sem sótti um námskeiðið að þessu sinni.
Lesa meira
03.06.2019
Réttindaskóli er hugmyndafræði sem UNICEF á Íslandi heldur utan um en þar er lögð áhersla á að rækta með markvissum hætti þekkingu, leikni og viðhorf sem hjálpa börnum að verða gagnrýnir, virkir og hæfir þátttakendur í nútímasamfélagi. Nú á vordögum hófst undirbúningur vegna innleiðingar Réttindaskóla UNICEF á Akureyri og fyrstu skólarnir sem taka þátt eru Giljaskóli og Naustaskóli. Grunnforsendur Barnasáttmálans verða útgangspunktur í allri ákvarðanatöku í skóla- og frístundastarfi Réttindaskólanna. Framundan er skemmtileg vegferð skólasamfélagsins.
Lesa meira
29.05.2019
Fræðsluráð Akureyrarbæjar boðaði til samverustundar í Hofi, mánudaginn 27. maí, þar sem nemendum og starfsfólki leik- og grunnskóla Akureyrarbæjar voru veittar viðurkenningar fyrir framúrskarandi árangur í námi og starfi, skólaárið 2018-2019.
Óskað var eftir tilnefningum frá skólasamfélaginu um nemendur, starfsfólk eða verkefni sem talin voru hafa skarað fram úr í starfi skólanna á síðasta skólaári. Valnefnd, sem skipuð var fulltrúum frá fræðsluráði, Samtökum foreldra og Miðstöð skólaþróunar við HA fór yfir allar tilnefningar og lagði fram tillögu til fræðsluráðs til samþykktar.
Karl Frímannsson, sviðsstjóri fræðslusviðs, bauð gesti velkomna og kynnti atriði frá Tónlistarskólanum en það var Árni Dagur Scheving, nemandi í Tónlistarskólanum á Akureyri, sem lék á flygil Bohemian Rhapsody eftir Freddy Mercury. Að því loknu afhenti Ingibjörg Isaksen, formaður fræðsluráðs, viðurkenningar. Að dagskrá lokinni var gestum boðið að þiggja veitingar.
Lesa meira
28.05.2019
Rafíþróttir er samheiti yfir skipulagða keppni í tölvuleikjum. Í gegnum tíðina hefur þetta átt við þegar margar tölvur eru settar upp í sama rými og fólk keppist um að standa sig sem best. Þannig var t.d. heimsmeistaramótið í Atari leiknum Space Invaders árið 1980.
Síðan þá hefur tækninni fleygt fram og tölvuleikir eru nú í dag að miklu leiti spilaðir í gegnum netið. Þetta nýja umhverfi hefur skapað mun betri aðstæður til samkeppni en áður, nú þarf ekki fjölmargar tölvur á einum stað heldur geta lið frá öllum heimshornum keppt á móti hvort öðru á netinu.
Á síðustu 10 árum hafa vinsældir rafíþrótta vaxið mikið og nú í dag eru yfir 400 milljónir manna sem fylgjast með rafíþróttum í heiminum og hafa stærstu viðburðirnir sett áhorfsmet sem oft gefa hefðbundnum íþróttum ekkert eftir. Sem dæmi má nefna að yfir 60 milljón manns fylgdust með úrslitaleik liðanna Royal Never Give Up og Kingzone Dragonx í League of Legends sumarið 2018. Það er þrefaldur fjöldi þeirra sem horfðu á úrslitaleik NBA deildarinnar árið 2017.
Lesa meira
22.05.2019
Skólaslit hjá 1. – 9. bekk og sérdeild hefjast kl. 10:00 í íþróttahúsinu og í framhaldi kveðja þeir umsjónarkennara sína í heimastofum. Foreldrar/forráðamenn eru velkomnir. Áætlað að þetta taki um klukkustund. Frístund er lokuð.
Skólaslit hjá 10. bekk hefjast kl. 16:00 í íþróttahúsinu og eiga nemendur að mæta stundvíslega kl. 15:20 í íþróttahúsið því það verður byrjað á myndatöku. Að því loknu er hið hefðbundna kaffihlaðborð fyrir 10. bekk og aðstandendur í matsal Giljaskóla.
Lesa meira
17.05.2019
Nemendur í 7. HR tóku þátt í verkefni í vetur sem Embætti landlæknis leggur fyrir. Verkefnið kallast Tóbakslaus bekkur og þurfa nemendur að búa til áhugavert efni tengt tóbaksvörnum. 7., 8. og 9. bekkur mega taka þátt. Okkar krakkar ákváðu að búa til stuttmynd og lag og lögðu mikla vinnu og metnað í verkefnið. Þau sáu um handritsgerð, lag, textagerð, upptökur, leik, leikmuni, klæðnað og klippingu ásamt því að skrifa undir að hafa verið tóbakslaus í vetur. Embætti landlæknis fékk send verkefni frá 230 bekkjum af landinu öllu og verðlaunaði 10 verkefni sem þóttu skara fram úr, en 7. HR átti eitt þeirra og fær bekkurinn 5 þús. krónur á hvern nemanda til að gera eitthvað skemmtilegt nú á vordögum. Hér er hægt að skoða
Lesa meira
16.05.2019
Kynningarfundur fyrir verðandi 1. bekk og foreldra verður haldinn í skólanum næstkomandi fimmtudag 23. maí kl. 10.00 á sal skólans.
Á fundinum fara nemendur í kynnisferð um skólann í fylgd 5. bekkinga sem eru verðandi vinabekkir þeirra næstu árin. Á meðan munu stjórnendur skólans funda með foreldrum og upplýsa þá um hvernig skólastarfi verði háttað næsta vetur. Á fundinn mæta einnig verðandi umsjónarkennarar árgangsins og umsjónarmaður Frístundar sem segir frá lengdri viðveru.
Lesa meira
15.05.2019
Hér má sjá skóladagatal fyrir skólaárið 2019 - 2020
Lesa meira
03.05.2019
Miðvikudaginn 15. maí kemur nýr skólastjóri til starfa við Giljaskóla. Það er Kristín Jóhannesdóttir sem verið hefur skólastjóri í Oddeyrarskóla síðast liðin ár.
Kristín tekur formlega við sem skólastjóri þennan dag en ég mun vinna með henni út skólaárið við að setja hana inn í mál og aðstoða eftir þörfum. Ég mun sjá um skólaslitin hér í Giljaskóla í vor og Kristín um skólaslitin í Oddeyrarskóla.
Þorgerður Guðlaugsdóttir, aðstoðarskólastjóri, hættir einnig nú í lok skólaársins og kveður þar með síðasti aðstoðarskólastjóri á Akureyri. Í öllum grunnskólum bæjarins verða þá skólastjórar og með þeim deildarstjórar þar sem annar er staðgengill skólastjóra. Vala Stefánsdóttir, deildarstjóri í Giljaskóla, verður deildarstjóri eldri bekkjardeilda og staðgengill skólastjóra í Giljaskóla. Nýr deildarstjóri yngri bekkjardeilda hefur verið ráðinn og tekur til starfa 1. ágúst 2019. Það er
Lesa meira