Þriðjudaginn 3. febrúar er nemendum í Giljaskóla boðið í Hlíðarfjall. Ekki verður hefðbundin kennsla þennan dag, en utanskóla valgreinar verða þó kenndar eftir hádegið. Að þessu sinni er Skautahöllin í boði fyrir nemendur í 5.-10. bekk.
Nemendur í 1.-4. bekk mæta í skólann kl. 9:00 (rútur fara 9:30 og skóla lýkur um kl. 12:15 (rútur frá fjalli 11:45)
Nemendur í 5. -7. bekk mæta í skólann kl. 8:30 (rúta fer 8:45) og skóla lýkur kl. 12:30 (rúta frá fjalli 12:00)- rútur í skautahöll fara 8:45 og heim 11:30.
Nemendur í 8.- 10. bekk mæta í skólann kl. 8:45 (rúta fer 9:00) og skóla lýkur kl: 12:40 (rúta frá fjalli 12:15). skautahöll fara 9:00 og heim 11:45.
Nemendur í 1.- 4. bekk mega koma með þotu eða sleða. Þeir geta nýtt sér töfrateppið og Auði. Nemendur í þessum árgöngum sem eru algjörlega færir um að fara sjálfir á skíði / bretti (eða eru í fylgd foreldra) og eiga búnað mega nýta sér sinn búnað og skella sér á skíði/ bretti. Athugið að það er hjálmaskylda í fjallinu og það þarf að leigja hjálm ef hann er ekki til heima (senda á umsj.kennara ef það þarf að leigja hjálm).
Nemendur í 5.- 10. bekk koma með eigin búnað og hjálm. (skíði, bretti, snjóþotu). Foreldrar geta óskað eftir að skólinn leigi búnað, ef ekki er til búnaður á heimilinu. Mikilvægt að láta umsjónarkennara vita um hæð, þyngd, skóstærð, getustig og hjálm ef það þarf að leigja búnað, síðastalagi á mánudaginn 2. febrúar. Skólinn mun halda utan um leigu á búnaði. Lyftur sem verða opnar í Hlíðarfjalli eru Töfrateppið, Hólabraut, Hjallabraut og Fjarkinn. Aðrar lyftur fylgja hefðbundnum opnunartíma Hlíðarfjalls. Ekki er leyfilegt að dvelja áfram í fjallinu.
Skautahöllin er í boði fyrir nemendur í 5.-10. bekk. Nemendur koma með skautana sína í tösku. Þeir nemendur sem ekki eiga búnað eða geta ekki fengið lánaða, geta fengið að leigja skauta.
Mikilvæg atriði:
-
Áríðandi að foreldrar brýni fyrir börnum sínum að þau gæti að sér hvar sem þau eru og reyni ekki að fara í lyftur og skíðabrautir sem þau ráða ekki við.
-
Foreldrum er velkomið að hitta okkur uppi í fjalli og vera með okkur þennan dag.
-
Mikilvægt er að muna eftir næringarríku nesti, hjálmi og góða skapinu (kakó tilvalið í kulda).
-
Hægt er að borða nesti í veitingasal Hlíðarfjalls en veitingasala verður ekki opin.
-
Vera klædd til útivistar, merkja vel föt og allan búnað.
-
Hjálmurinn skiptir höfuðmáli hvort sem barnið er á bretti, sleða eða skíðum.
-
Lánsbúnaði þarf að skila inn í leiguhús í Hlíðarfjalli eftir notkun.
-
Samkvæmt veðurspá verður rólegur vindur og hiti rétt um frostmark í fjallinu og því mikilvægt að nemendur komi vel klæddir.
Skipulag dagsins:
-
Rútur í Hlíðarfjall fara kl. 9:30 og til baka kl. 11:45.
-
Matur kl. 12:00. Að loknum mat fara nemendur heim eða í frístund.
Frístund er einungis fyrir þá sem eru þar skráðir. Stuðningsfulltrúar fylgja nemendum í frístund þar til hefðbundin frístund opnar.
Miðstig: Mæting í skóla kl. 08:30.
-
Rútur í Hlíðarfjall kl. 9:00 og til baka kl. 12:15. Matur við heimkomu.
-
Skautahöll: Rúta kl:8:35 heim frá skautahöll: 11:30
-
Innanskólavalgreinar falla niður en utanskólaval stendur til boða.
Vakin er athygli á því að veður og færi getur breyst á skömmum tíma og verða allir að taka mið af því. Upplýsingar varðandi útivistardag má líka finna á heimasíðu Giljaskóla, giljaskoli.is Ef fresta þarf útivistardegi þá verða komnar upplýsingar á heimasíðuna kl. 7:00 á útivistardeginum.
Greiðsla vegna leigu á skíðabúnaði eða skautum ber skólinn kostnað af, því er mikilvægt að leigja ekki búnað að óþarfa.
Með von um góða skemmtun í Hlíðarfjalli
Starfsfólk Giljaskóla