UNICEF Hreyfingin - TAKK!

Takk kærlega fyrir samstarfið í ár og takk kærlega fyrir þátttöku ykkar í UNICEF-Hreyfingunni í ár! 
Þetta var svo sannarlega frábær söfnun en það söfnuðust 116.883 krónur! 

Ykkar framlög munu nýtast UNICEF víðsvegar um heiminn. Við viljum nýta tækifærið og deila með ykkur dæmum um hvað hægt er að gera fyrir upphæðina sem safnaðist!

 

Með ykkar áheitum í ár er til dæmis hægt að útvega 

  • 2200 skammta af plumpy-nut, vítamínbættu jarðhnetumauki. Með þeim er hægt gera kraftaverk fyrir vannærð börn en í flestum tilfellum þurfa börn einungis þrjá skammta á dag í nokkrar vikur til þess að ná fullum bata.
  • 4000 skammta af bóluefni gegn mislingum. Mislingar eru hættulegur sjúkdómur sem ógnar lífi barna. Góðu fréttirnar eru þær að það má auðveldlega koma í veg fyrir mislinga með bólusetningu.
  • 4 skóla í kassa! „Skóli í kassa“ inniheldur allt sem þarf til að börn geti haldið skólagöngu sinni áfram við neyðaraðstæður. Málmboxið er fullt af námsgögnum: Stílabókum, blýöntum, strokleðrum, litum, skærum og öðru. Í því eru einnig sem dæmi upptrekkjanlegt útvarp og gráðubogi. Lokið á boxinu má síðan mála með krítum sem eru í kassanum og þar með eru börnin komin með krítartöflu.

 

Þetta er vitaskuld bara dæmi um það sem að upphæðin getur gert en ég vona að þetta sýni hve miklu er hægt að koma í verk fyrir ykkar frábæru söfnun. Endilega deildu þessum pósti með skólasamfélaginu þínu!