UNICEF

Mánudaginn 26. maí fór fram árleg Unicef Hreyfing í Giljaskóla. Markmiðið er að safna áheitum fyrir að leysa hreyfiþrautir og verkefni. Í ár var safnað fyrir börnum sem búa við stríð. Hægt er að styðja framtakið á https://sofnun.unicef.is/teams/giljaskoli-2025

 

Í Giljaskóla er starfandi réttindaráð Unicef sem samanstendur að mestu af nemendum skólans á ólíkum aldri en eitt af verkefnum þeirra í vetur var að undirbúa þennan viðburð. Nemendur og starfsfólk tóku vel á því þennan dag, lærðu heilmikið og skemmtu sér einnig vel. Hér er myndbandssyrpa af Giljakrökkum leysa sum þeirra fjölbreyttu verkefna sem boðið var upp á https://drive.google.com/file/d/15KcpzD5Jhpf8-9XAqSULfl5C30YTHlJ3/view?usp=sharing