Skólastarf verður á morgun, fimmtudag 12. des 2019

Skólahald verður hjá okkur eins og í öllum skólum bæjarins á morgun, fimmtudag, samkvæmt dagskrá. Veðrið virðist ganga hægar niður en spáð var og því hefur gengið hægar að hreinsa götur bæjarins. Framkvæmdamiðstöð reiknar með að moka fram á kvöld og hefja mokstur kl. 4 í fyrramálið. Veðurspáin hljóðar upp á 13-18 m/s og él.
Þið foreldrar metið að sjálfsögðu ykkar aðstæður og ef erfitt er að koma til skóla strax í fyrramálið sýnum við því skilning.
Við óskum þó eindregið eftir að vera látin vita svo við vitum af börnunum á öruggum stað.