Skólaslit Giljaskóla 8. júní

Á mánudaginn 8. júní verða skólaslit í Giljaskóla.

Nemendur í 1.-9. bekk mæta í íþróttahús Giljaskóla kl.9.00 þar sem skólastjóri slítur skólanum. Að því loknu fara nemendur í heimastofur, taka við vitnisburði og halda út í sumarið.

Útskrift 10. bekkjar fer fram kl.15.00 sama dag. Allir útskriftarnemar þurfa að vera mættir í síðasta lagi kl. 14.20, fá í sig nælda rós og æfa brosið fyrir hópmyndartöku kl.14.30. Eftir athöfnina í íþróttahúsi er kaffisamsæti fyrir útskriftarnema, forráðamenn og starfsmenn Giljaskóla.