Skólasetning

Skólasetning Giljaskóla fyrir nemendur í 2-10. bekk verður í íþróttasal Giljaskóla mánudaginn 22. ágúst kl. 9:00. Gert er ráð fyrir að skólasetning taki hálfa til eina klukkustund.

Nemendur 1. bekkjar og foreldrar þeirra verða boðaðir í viðtöl hjá umsjónarkennurum 22. og 23. ágúst.

Frístund opnar kl. 9:30 á skólasetningardag fyrir þau börn sem þar eru skráð.

Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá þriðjudaginn 23. ágúst hjá 2. - 10. bekk, en hjá 1. bekk miðvikudaginn 24. ágúst. Valgreinar á unglingastigi hefjast vikuna eftir.