Skólahald fellur niður frá kl. 13

Skólahald fellur niður á Akureyri frá kl. 13. Frístund lokar einnig þá.

Við mælumst til að foreldrar barna í 1. - 4. bekk sæki börn sín og óskum eftir að þeir foreldrar sem ætla að sækja eldri börn láti okkur vita svo við getum komið skilaboðum til þeirra. Senda má póst til Kristínar skólastastjóra, kristinj@giljaskoli.is.,

Ekki hefur verið tekin ákvörðun varðandi morgundaginn, við látum ykkur vita um leið og ákvörðun liggur fyrir.