Nemendur og starfsfólk Giljaskóla stóðu saman gegn einelti

Nemendur og starfsfólk Giljaskóla stóðu saman gegn einelti

Í dag var haldið upp á Baráttudag gegn einelti í Giljaskóla. Af því tilefni fóru allir nemendur skólans út og mynduðu eina stóra ,,vinakeðju” utan um skólann.

Að þessu sinni langaði okkur að gera Baráttudegi gegn einelti hátt undir höfði, með því að mynda keðju utan um skólann. Það var sannarlega ánægjulegt og gleðiefni að sjá hve fjöldi nemenda ásamt öllu starfsfólki náði að halda vel utan um skólann okkar.

Hilmar Friðjónsson á heiðurinn af myndunum sem teknar voru til að fanga þetta augnablik á mynd og þökkum við honum kærlega fyrir. Þessi stund minnir okkur öll á hve dýrmætt það er að sýna kærleika, virðingu og umhyggju í skólastarfinu á hverjum einasta degi. Myndir og myndbönd hér

Frétt af kaffid.is

Kæru nemendur og starfsfólk, takk kærlega fyrir frábæra og hjartahlýja þátttöku!