Leikhópurinn Lotta kíkti á nemendur í 1.-4. bekk

Í dag fengu nemendur í 1.-4. bekk leikhópinn Lottu í heimsókn.
Leikritið sem sýnt var nefnist Gríslingur og Eyrnaslapi og fjallaði um afmælisdag Eyrnaslapa.

Leiksýningin fór fram í íþróttahúsinu og fengu nemendur mikið hrós fyrir hversu góðir áheyrendur þau voru. Skemmtilegt uppbrot á þriðjudegi og þökkum við foreldrafélaginu kærlega fyrir að kosta þessa sýningu.