6. bekkur á Húna

Nemendur í 6. bekk fór í vettvangsferð á sjó á bátnum Húna II. Það eru Hollvinir Húna II. sem standa að ferðunum í samstarfi við Háskólann á Akureyri og fræðslusvið Akureyrarbæjar.

Nemendur fengu að kynnast sjávarútveginum og fræðast um lífríki sjávar á metnaðarfullan hátt, ásamt sögufræðslu um bátinn og ströndina.  Nemendur fengu að sjá gömul veiðarfæri og önnur tilheyrandi tól og sagt frá notkun þeirra. Einnig heimsóttu þau skipstjórann í brúnni sem fræddu þau um stjórnun og siglingatæki skipsins.

Mjög skemmtilegur dagur í góðu veðri.