Elías Gunnar verður skólastjóri Giljaskóla

Elías Gunnar Þorbjörnsson hefur verið ráðinn skólastjóri við Giljaskóla og tekur til starfa þar 1. febrúar 2023. Elías er menntaður grunnskólakennari og með meistarapróf í stjórnun menntastofnana. Hann hefur verið skólastjóri við Lundarskóla síðastliðin 10 ár. Við bjóðum Elías Gunnar velkominn í Giljaskóla. 

Vala Stefánsdóttir verður starfandi skólastjóri þar til Elías tekur við.