Árshátíð Giljaskóla 2026

Árshátíð Giljaskóla fór fram dagana 25. og 26. mars.

Nemendur mættu hér með bros á vör, tilbúnir að sýna afrakstur vinnu sinnar. Það er dásamlegt að finna þann kraft og þá samstöðu sem einkennir skólasamfélagið á þessum dögum.
Að þessu sinni var skipulagi árshátíðar breytt og var almenn ánægja með þetta nýja fyrirkomulag, styttri sýningar, minni hópar og vöfflukaffi á eftir.
Dagskráin var með eindæmum fjölbreytt og eitthvað fyrir alla. Sérdeildin sýndi skemmtilegt myndband við eitt af uppáhaldslögum deildarinnar, 1. og 2. bekkur sýndu valin atriði úr leikritinu um Benedikt búálf, fræðst var um villt dýr á Íslandi og kátrídansar voru sýndir. Auk þessara atriða kynnti 5. bekkur okkur fyrir nýjum skólastjóra Giljaskóla, 6. bekkur var með tímavél. 

Nemendur í 7. og 8. bekk buðu upp á bráðfyndið og lifandi atriði þar sem þau endurskapa dæmigert sjónvarpskvöld fjölskyldunnar. Það er óhætt að segja að margir í salnum þekkja sig í þeim skoplegu aðstæðum sem þar eru dregnar upp.

Eldri nemendur skólans létu heldur ekki sitt eftir liggja. Í 9. og 10. bekk er mikill metnaður lagður í stuttmyndasýningu. Þetta er stórt verkefni þar sem nemendur semja eigin handrit frá grunni, sjá um allar upptökur á atriðum og vinna svo hörðum höndum að klippingu og hljóðvinnslu. Útkoman er vægast sagt fagmannleg og sýnir hversu hæfileikaríkir nemendur okkar eru.

Við færum nemendum, foreldrum og starfsfólki okkar innilegar þakkir fyrir þessa frábæru daga. Það er samvinna allra sem gerir árshátíð Giljaskóla að þeim stórkostlega viðburði sem hún er. Gleðin og sköpunarkrafturinn eru sannarlega leiðarljós okkar hér í skólanum!