Árshátíðir 2019

Nú stendur árshátíð Giljaskóla fyrir dyrum. Árshátíðir nemenda verða haldnar í íþróttasal skólans þriðjudaginn 26. mars, miðvikudaginn 3. apríl og fimmtudaginn 4. apríl kl. 17:00.

Aðgangseyrir er 500 krónur fyrir fullorðna og gesti. Nemendur í Giljaskóla og yngri börn borga ekki aðgangseyri. Selt er inn við innganginn í íþróttahúsinu. Það er ekki posi á staðnum.

 

Aðgangseyririnn skiptist á milli sérdeildar og 1. - 9. bekkja og er nýttur til vorfagnaða.

 Foreldrasýningar í íþróttasal Giljaskóla verða sem hér segir;

 Þriðjudagur 26. mars kl. 17:00 sýning stuttmynda nemenda í 8. - 10. bekk; afrakstur stuttmyndadaga.

 Miðvikudag 3. apríl kl. 17:00 sýna: Sérdeild (myndband), 1. ÁEK, 2. LS, 3. bekkur (helmingur),

  4. bekkur, 6. KMÞ og 7. BK.

 Fimmtudag  4. apríl kl. 17:00 sýna: Sérdeild (myndband), 1. AE, 2. GS, 3. bekkur (helmingur),

  5. bekkur, 6. TB og 7. HR.

 

Sýningar nemenda munu taka um það bil eina klukkustund.

Sjoppa verður opin í íþróttasalnum á stuttmyndasýningunni þriðjudaginn 26. mars en að loknum sýningum 3. og 4. apríl verður kaffisala á vegum 10. bekkjar í sal skólans til styrktar ferðasjóði bekkjarins.

 

Kaffi og meðlæti kostar 1200 krónur fyrir fullorðna og 8. - 10. bekk, 500 krónur fyrir nemendur í

1. - 7. bekk og yngri börn fá frítt.

 

Árshátíðarball verður fyrir nemendur í 8. - 10. bekk og afhending á Giljaranum vegna stuttmynda verður föstudagskvöldið 29. mars.

Verðlaunaafhendingin hefst kl. 20:00 (aðgangur ókeypis).

Árshátíðarballið hefst að afhendingu lokinni eða um kl. 20:45 og stendur til miðnættis. Aðgangseyrir á ballið er 1500 kr.

7. bekkingar eru velkomnir á ballið og mega þeir vera til kl. 23:00. Umsjónarkennarar þeirra verða á ballinu.

 

Viðvera nemenda í skólanum verður samkvæmt stundaskrá þessa daga.
Nemendur eru beðnir um að mæta í heimastofur sýningardaga ekki seinna en kl. 16:30.

Við vonum að allir sjái sér fært að mæta og eiga góða stund í skólanum með börnum sínum.
Vinsamlegast virðið að það þarf að vera næði í salnum svo allir njóti sýningarinnar bæði nemendur sem eru að sýna á sviði og eins áhorfendur sem vilja geta notið þess að fylgjast með sýningunni. Gætið þess að börn ykkar séu ekki hlaupandi um salinn á meðan á sýningum stendur.

Kær kveðja og góða skemmtun,

starfsfólk Giljaskóla