Alþjóðlegur dagur læsis 8. september

árgangar hittast og lesa saman
árgangar hittast og lesa saman

Alþjóðadagur læsis

Þriðjudaginn 8. sept. héldum við upp á Alþjóðadag læsis og af því tilefni gerðum við lestrinum aðeins hærra undir höfði í skólanum. Markmiðið var að vekja athygli á mikilvægi lesturs og skapa notalegar stundir þar sem nemendur gátu notið bóka saman.

Bekkir skólans voru paraðir saman og eldri nemendur komu í heimsókn til þeirra yngri. Þar lásu þeir fyrir yngri nemendur og áttu með þeim skemmtilega lestrarstund. Það var einstaklega ánægjulegt að sjá hvernig lesturinn tengdi nemendur á ólíkum aldri saman.

Skólasafnvörðurinn okkar lagði einnig sitt af mörkum til dagsins með því að velja fjölbreytt úrval bóka og koma þeim fyrir á göngum skólans. Með því viljum við auka aðgengi nemenda að bókum, vekja forvitni þeirra og hvetja til enn meiri lesturs, bæði í skólanum og heima.