Alþjóðadagur Downs heilkennis 21. mars 2026

Laugardaginn 21. mars er alþjóðlegur dagur Downs heilkennis.  Dagsetningin er táknræn að því leyti að hún vísar til þess að Downs-heilkenni orsakað af auka litning í litningapari 21, það eru þrjú eintök af litning 21 - 21.03. Á alþjóðadegi Downs heilkennis göngum við um í ósamstæðum og litskrúðugum sokkum til að draga fram fjölbreytileikann og til að minna á mikilvægi hans í samfélaginu. Af þessu tilefni hvetjum við nemendur og starfsfólk til að mæta í mislitum sokkum föstudaginn 20. mars.