ABC hjálparstarf í Giljaskóla

Á næstu dögum munu nemendur fá kynningu á börnunum tveimur sem nemendur og starfsmenn í Giljaskóla styrkja. Frá árinu 2007 höfum við styrkt tvö börn, oftast strák og stelpu.

Við höfum frá 2018 styrkt dreng sem heitir Ibrahim Famba Mohamed og býr hann í Uganda. Hann er fæddur árið 2009. Hann býr hjá fátækri, einstæðri móður og þremur systkinum. Móðirin vinnur við garðyrkjustörf og þvær þvotta fyrir fólk til að geta framfleytt þeim. Hún er mjög þakklát fyrir að Ibrahim fái tækifæri til að ganga í skóla.

Frá 2016 höfum við styrkt Kevine Jenneth Akello sem býr líka í Uganda. Hún er fædd árið 2008. Hún býr hjá móður sinni og þremur bræðrum, faðir er látinn. Móðir er með HIV og mjög fátæk svo hún hefur ekki efni á að senda börnin í skóla.

Við styrkjum Kevine og Ibrahim svo þau geti farið í skóla, þar fá þau eina máltíð og heilsugæsluþjónustu.

Það sem við þurfum til að styrkja þessi tvö börn er 7.000 kr á mánuði. Ef öll heimili sem eiga nemendur í skólanum leggja til um 3-400 krónur á ári þá náum við að safna nægum pening til að styrkja þau allt næsta ár. Sparibaukar verða í kennslustofum fram í miðjan desember og vonumst við til að flestir taki þátt og leggi sitt af mörkum (upphæðin er að sjálfsögðu frjáls, má vera lægri eða hærri en sú sem var nefnd hér að framan).

Það er trú okkar að með þessu séum við að sá fræjum til nemenda Giljaskóla um að við þurfum að hugsa um minnstu bræður okkar í fjarlægum löndum. Þau koma okkur við og við getum haft áhrif þó við búum á hinu kalda Íslandi. Margt smátt gerir eitt stórt.

Bendum ykkur á þætti sem eru á RÚV á sunnudagskvöldum, fyrsti þátturinn af þrem var í gær, 2. des. Þeir fjalla um 15 ára íslenska stelpu sem var valin til að fara til Úganda þar sem hún hittir jafnöldrur sínar og kynnist heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna. Áhugavert fyrir nemendur að sjá landið og aðstæðurnar sem okkar styrktarbörn búa í.

 Kevine Kevine

 

Ibrahim