ABC - börn hjálpa börnum

Líkt og undanfarin ár taka börn í 5. bekk í Giljaskóla þátt í söfnuninni Börn hjálpa börnum á vegum ABC hjálparsamtaka. Þau munu ganga í hús í hverfinu með söfnunarbauka frá 19.mars.

Þetta er 22. árið sem þessi söfnun grunnskólabarna fer fram og er hún  mjög mikilvæg fjáröflun fyrir ABC barnahjálp. Fyrir afrakstur þessara safnana í gegnum árin hafa verið fjármagnaðar byggingar fjölmarga skóla og heimila fyrir fátæk börn í Afríku og Asíu.

Margt smátt gerir eitt stórt – takið vel á móti krökkunum.