Niðurstöður viðhorfakönnunar meðal kennara og nemenda á Akureyri.

Spilað í unglingadeild
Spilað í unglingadeild

Foreldrar:

Í meginatriðum verður ekki annað séð en að kennarar séu ánægðir með skólann sem sinn vinnustað þrátt fyrir að þeir telji sig ekki eiga mikla hlutdeild í ákvörðunum innan skóla né þeim falin forysta um fagleg mál. Kennarar virðast ánægðir með þær nýjungar sem unnið er að í þeirra skóla, þeir segja tekið af mikilli festu á málum í skólanum og eru ánægðir með faglega stefnu skólastjóra.

Kennarar eru almennt sammála því að nemendum líði vel í skóla sínum og þeir hafi jákvætt viðhorf til skólans. Mikill meirihluti kennara segir að nemendur séu hafðir í forgrunni við allar ákvarðanir í skólanum en hins vegar meta einungis 50% kennara það svo að nemendur hafi mikinn metnað í námi.

Almennt virðast kennarar hafa mjög jákvætt viðhorf til faglegs starfs í skóla sínum. Þeir segja að skólinn leggi mikla áherslu á jákvæð samskipti starfsfólks og nemenda, þeir eru sammála því að kennarar axli sameiginlega ábyrgð gagnvart nemendum og skólinn leggi mikla áherslu á að starfsfólk sýni nemendum gott fordæmi. Kennarar segjast þekkja vel til einstaklingsbundinna námsþarfa allra nemenda sinna og telja að fjölbreyttum kennsluaðferðum sé beitt í þeirra skóla.

Kennurum finnst sérfræðiþjónusta skólanna bregðast seint við óskum um aðstoð eða ráðgjöf. Þar sem kennarar segjast þekkja nokkuð vel hvaða þjónustu megi sækja til skólateymis fjölskyldudeildar, betur en hvað sækja megi til Skólaþróunarsviðs, má ætla að kennarar leiti fremur til fjölskyldudeildar með vandamál en til Skólaþróunarsviðs. Mjög stór hópur kennara leggur ekki mat á þjónustu þessara stofnana en þeir sem það gera gefa henni góða dóma. Milli 80 og 90% segir hana góða, en hafa ber þá í huga að mjög margir taka ekki afstöðu.

Almennt virðast kennarar hafa jákvætt viðhorf til samskipta við foreldra. Eins og í fyrri könnunum segja yfir 80% kennara samstarfið við foreldra ánægjulegt en um leið vilja flestir aukna þátttöku foreldra í skólastarfinu og eru yfir 80% þeirra sem taka afstöðu þeirrar skoðunar að aukin þátttaka foreldra myndi hraða umbótum í skólastarfi.
Skýrsluna í heild má nálgast á heimasíðu skóladeildar http://skoladeild.akureyri.is/.

Nemendur:

Trausti  gerði einnig grein fyrir niðurstöðum könnunar sem gerð var meðal nemenda í 8.- 10. bekk í grunnskólum Akureyrarbæjar vorið 2010. Helstu niðurstöður eru þær að: Nemendum í grunnskólum Akureyrar virðist líða vel í skólanum og þeir eru ánægðir með skólann sinn. Hlutfallslega fleiri nemendur í 9. og 10. bekk segjast ánægðir með skólann sinn en nemendur í 8. bekk. Hlutfallslega færri nemendur en fleiri segja hins vegar að það sé gaman í skólanum og að þar sé friður til að læra. Marktæk tengsl eru á milli bekkjar og viðhorfs nemenda til þess hversu gaman er í skólanum og hvort friður sé til að læra. Viðhorf nemenda 10. bekkjar virðist almennt jákvæðara til skólans síns en nemenda í 8. og 9. bekk.

Mestur áhugi meðal nemenda er á íþróttum, verkgreinum og ensku en minnstur áhugi á dönsku og íslensku. Mikill meirihluti nemenda telur sig hafa mikinn metnað til að standa sig vel í námi og að gerðar séu miklar kröfur til þeirra í skólanum. Ef marka má afstöðu nemenda til krafna sem til þeirra eru gerðar virðast þær aukast í elstu bekkjum skólanna.

Niðurstöður benda til að nemendur fái lítt að vera með í ráðum við að skipuleggja eigið nám. Langflestir nemendur telja að þeir fái góða kennslu í sínum skóla og að kennarar hafi metnað fyrir þeirra hönd. Tæplega helmingur nemenda segir hins vegar starfið í skólanum fjölbreytt og yfir 40% segir að lítil áhersla sé lögð á samvinnu nemenda í kennslustundum. Mikill meirihluti nemenda segist sjaldan vera í hópastarfi í kennslustundum.

Ef marka má niðurstöður virðast kennarar vera mjög sparir á hrós við nemendur sína svo og nemendur á hvern annan. Foreldrar virðast umbuna börnum sínum með hrósi.
Skýrsluna í heild má nálgast á heimasíðu skóladeildar http://skoladeild.akureyri.is
Skólanefnd þakkar Trausta fyrir kynninguna og felur fræðslustjóra að ræða niðurstöðurnar við skólastjóra með það að markmiði að bregðast við því sem betur má fara.