Kynningarfundur vegna fyrirhugaðs foreldrarölts um skólahverfin

Kynningarfundurinn verður haldinn í Brekkuskóla fimmtudaginn 22. september klukkan 20:00. Fundurinn er ætlaður fyrir alla foreldra grunnskóla bæjarins og hvetjum við foreldra og forráðamenn nemenda í Giljaskóla til að fjölmenna og kynna sér þessa hugmynd um foreldrarölt í hverfum bæjarins börnum okkar til heilla.