Innheimta árgjalds stendur yfir

Í nóvember hefst innheimta árgjalds foreldrafélagsins. Foreldrar allra barna í skólanum eru meðlimir í foreldrafélaginu nema þeir óski eftir öðru. Eins verður staðið að innheimtunni og síðustu ár og verða gjöldin óbreytt. Annað foreldri fær sendan gíróseðil í heimabankann sinn og eruð þið vinsamlegast beðin að greiða eins fljótt og hægt er. Athugið að þessi gíróseðill flokkast sem valkrafa og þarf því stundum að leita að honum í heimabankanum, hann birtist ekki alltaf sjálfkrafa í „ógreiddir reikningar“.

Þeir foreldrar sem þess óska geta lagt beint inn á reikning foreldrafélagsins samkvæmt eftirfarandi upplýsingum.

Kt 550998-3359   Banki 565 – 26 – 774