Hausthátíð foreldrafélagsins

Hausthátíð Foreldrafélags Giljaskóla var vel sótt. Margir tóku áskoruninni um að mæta í búningum og voru veitt þrenn verðlaun fyrir búninga. Auk búningakeppninnar voru sett upp stöðvar s.s. hoppukastalar, smíðavinna og andlitsmálun og töfradrengurinn Einar Einstaki mætti á svæðið og sýndi listir sínar. Marimbasveit Giljaskóla spilaði nokkur lög og það skapaði óneitanlega karnivalstemningu. Veitingar voru í boði foreldrafélagsins en voru í umsjá 10. bekkja. Boðið var upp á vöfflur, kornstangir, djús og kaffi.

Kærar þakkir fyrir samveruna.
Stjórn foreldrafélagsins