Enn vantar bekkjarfulltrúa

Það er mikilvægt fyrir foreldrasamstarfið og samstarf heimila og skóla að skipaðir séu bekkjarfulltrúar í hverjum bekk, en þeir eru tengiliðir foreldra innan bekkjana og tengiliðir fyrir foreldrafélagið inn í bekki. Auk þess sjá bekkjarfulltrúar um að skipuleggja eitthvað sem foreldrar og börn, innan hvers bekkjar geta gert saman og leggur foreldrafélagið á hverju ári til peninga  (500 kr.fyrir hvert barn) til að koma á móts við slíkar skemmtanir. Bekkjarfulltrúum er bent á að nálgast peninga hjá Tryggva Haraldssyni gjaldkera foreldrafélagsins: email: tryggvi.haraldsson@becromal.it  gsm: 840-4807.