Drykkja unglinga - hver kaupir?

Frá forvarnarfulltrúa Akueyrarbæjar.

Þann 5. nóv. var haldin ráðstefnan Íslenskar æskulýðsrannsóknir. Að ráðstefnunni stóðu Æskulýðsráð, Tómstunda- og félagsmálafræðibraut MVS HÍ og Félagsvísindadeild HA í samstarfi við Félag fagfólks í frítímaþjónustu (FFF), Rannsóknarstofu í Bernsku- og æskulýðsfræðum (BÆR) og Félag æskulýðs,- íþrótta - og tómstundafulltrúa (FÍÆT). Mörg áhugaverð erindi á ráðstefnunni.

Meðal þeirra sem stigu í pontu var Kjartan Ólafsson, lektor við Háskólann á Akureyri. Hann flutti erindið Hver kaupir? Uppruni áfengis sem unglingar drekka og tengsl við drykkj! umynstur þeirra. Kjartan gerði tvær tilgátur um aðkomu foreldra að drykkju unglinga að umtalsefni, annars vegar þá að það borgi sig fyrir foreldra að kaupa áfengi fyrir unglinga og kenna þeim að fara með áfengi og hins vegar að foreldrar eigi ekki undir nokkrum kringumstæðum að útvega eða samþykkja drykkju unglinga sinna.
Sjá nánar http://postur.akmennt.is/exchweb/bin/redir.asp?URL=http://samanhopurinn.is/index.php?option=com_frettir%26Itemid=47