Börnin okkar og þeirra tómstundir/íþróttir eftir að skóla líkur.

Umræðuefnið er börnin okkar og þeirra tómstundir/íþróttir
eftir að skóla líkur.
Framsögumenn verða:
- Viðar Sigurjónsson, sviðsstjóri fræðslusviðs íþrótta- og
ólympíusambands Íslands
- Gunnar Svanbergsson, sjúkraþjálfari
- Kristinn H. Svanbergsson, íþróttafulltrúi frá íþróttadeild Akureyrar
Eftir hlé munu framsögumenn, ásamt fleiri góðum gestum, setjast að
pallborði og taka þátt í umræðum með foreldrum.
Markmiðið er að fá fram sýn foreldra og annarra fundargesta, á hvernig
þeir sjá fyrir sér vinnudag barna bæjarins. Hvað viljum við sem foreldrar?
Hvernig eru íþróttahúsin nýtt strax að skóla loknum? Er hægt að nýta
tímann betur strax eftir skóla, sem annars fer í gæslu? Fá öll börn jafnan
aðgang að öllum íþróttagreinum?
Kaffi og veitingar verða í boði foreldrafélaga grunnskólanna. Fjölmennum
og segjum okkar skoðun á þessu málefni og heyrum skoðanir annarra.