Giljaskóli hefur skráð sig til leiks í Svakalegu lestrarkeppnina sem er lestrarátak fyrir nemendur í 1. - 7. bekk.
Hún hefst þriðjudaginn 15.september og lýkur 6. október. Markmið keppninnar er að auka lestraránægju barna.
Skólinn sem les í flestar mínútur sigrar keppnina og hreppir titilinn Svakalegasti lestrarskóli landsins ásamt því að fá glæsileg bókaverðlaun.
Því er mikilvægt að vera dugleg að lesa og skrá í Læsir appið, þar komið þið foreldrar sterk inn.
Í lestrarkeppninni má skrá:
- Allan yndislestur - bæði heima og í skólanum.
- Virkan lestur á hljóðbókum.
- Lestur á öðru tungumáli en íslensku.
- Yndislestur foreldra fyrir barn í 1. bekk, þar sem mörg þeirra eru ekki byrjuð að lesa sjálf.
- EKKI á að skrá lestur á námsbókum.
Áhugasamir geta kynnt sér keppnina betur hér.
Úrslit verða kynnt 15. október.
Við hvetjum ykkur til að vera dugleg að skrá allan lestur.
Lestur er bestur
Kærar kveðjur
Læsisnefnd Giljaskóla