Í vikunni hafa nemendur í 2. bekk verið að vinna með áhugasviðsverkefni í tengslum við Snillingaviku. Í Snillingavikunni vinna nemendur að áhugasviðsverkefni sem þau velja sjálf viðfangsefni sem þau vilja kynna sér betur eða læra um.
Það hefur gengið rosalega vel í þessari vinnu, verkefnin fjölbreytt og skemmtileg. Allt frá því að vinna verkefni um kisuna sína, gera snjósleða, fótboltavelli, himingeiminn eða gera nýja íþróttatreyju svo eitthvað sé nefnt. Kveikjan af þessu verkefni er að þau voru að byrja að vinna með nýjan grunnþátt menntunar sem nefnist sköpun.