Skólasetning

Skólasetning er mánudaginn 24. ágúst í íþróttahúsi við Giljaskóla. Hjá  2.-6. bekk er hún kl.9.00 og þeir sem eru skráðir í Frístund fara þangað að henni lokinni. Hjá 7. - 10. bekk er skólasetning  kl.9:30. Skóli hefst svo skv. stundaskrá 25. ágúst.
1. bekkur mætir ekki og eru viðtöl hjá þeim 24. og 25. ágúst. Viðtalstímar verða úthlutaðir vikuna 17. - 20. ágúst. Skóli hefst svo samkv. stundaskrá 26. ágúst hjá 1. bekk. Frístund er opin 24. ágúst frá kl. 10 og 25. ágúst fyrir kl 12:45 fyrir 1. bekkinga sem eru skráðir þá daga.