Krónan styrkir útikennslu í Rjóðrinu!

Krónan styrkir útikennslu í Rjóðrinu!

Í dag fengum við frábæran stuðning úr grenndarsamfélaginu sem gerir okkur kleift að efla útinám og skemmtilega útivist enn frekar. Matvöruverslunin Krónan styrkir Giljaskóla með rausnarlegri peningagjöf til þess að útbúa útikennslustofu í Rjóðrinu, sem er útisvæði okkar.

Það voru þær Linda og Kristín, umsjónarkennarar í 5. bekk, sem tóku á móti þessari frábæru peningagjöf fyrir hönd skólans. Með þessum stuðningi gefst tækifæri til að efla útinám enn frekar.  Útinám gegnir mjög mikilvægu hlutverki í skólastarfinu og með þessum flotta styrk getum við gert upplifun barnanna enn skemmtilegri.

Þessi flotti styrkur verður nýttur á hagnýtan hátt. Keyptur verður góður og vandaður aðbúnaður til eldamennsku utandyra, sem gerir nemendum kleift að spreyta sig m.a. á matreiðslu undir berum himni. Til þess að auðvelda flutninginn á þessum nýja búnaði komum við til með að kaupa góða bakpoka. Þeir nýtast jafnt kennurum sem nemendum til þess að halda utan um og bera búnaðinn á  þægilegan hátt á milli Rjóðursins og Giljaskóla.

Við í Giljaskóla þökkum Krónunni kærlega fyrir sýndan stuðning í garð skólans. Það er ómetanlegt að finna svona góðan stuðning sem nýtist nemendum okkar beint í námi og leik. Við hlökkum til að sjá skemmtilegt starf blómstra í Rjóðrinu. Í Rjóðrinu sjáum við nemendahópa blómstra saman og kennir börnunum mikilvæga lífsleikni í leiðinni. Innilegar þakkir aftur, Krónan, fyrir að hjálpa okkur að gera skólastarfið enn meira skapandi!