Höldum áfram góðum sóttvörnum

Kæru foreldrar / forráðamenn barna í Giljaskóla

Við þurfum áfram að vera á varðbergi gagnvart covid-19. Hér í skólanum reynum okkar besta til að gæta sóttvarna en við þurfum nauðsynlega ykkar samvinnu í þessum efnum áfram. Höfum þrennt alltaf í huga:

1. Ef nemandi sýnir einkenni sem gætu tengst Covid -19, vinsamlega haldið honum heima.
2. Ef einhver fjölskyldumeðlimur er á leið í sýnatöku, vinsamlega sendið börnin ekki í skólann fyrr en niðurstaða er fengin.
3. Látið ritara vita ef um er að ræða veikindi sem tengjast Covid-19.

Eins og flestir vita er nú komið eitt virkt smit á Akureyri og því þurfum við að herða okkur og vera vel vakandi. Við biðjum ykkur því að ítreka við börnin ykkar að þau verða að spritta hendur við komu í skólann og þegar þau fara í matsal.

Sjá nánar frétt RÚV: https://www.ruv.is/frett/2021/04/29/eitt-smit-stadfest-a-akureyri