Heimsókn Dr. Bryony Mathew

Á þriðjudaginn síðasta  fékk 4. bekkur mjög ánægjulega og áhugaverða heimsókn.  Breski sendiherrann á Íslandi, Dr. Bryony Mathew ásamt tveimur starfsmönnum sendiráðsins komu hingað í Giljaskóla og heimsótti nemendur 4. bekkjar til að ræða við þá um spennandi störf framtíðarinnar. Bryony er doktor í taugavísindum og einnig barnabókahöfundur. Nýlega gaf sendiráðið út bók hennar um störf framtíðarinnar á íslensku, bókin verður ekki til sölu heldur mun breska sendiráðið gefa prentuð eintök þeim bókasöfnum og skólum sem hafa áhuga á.  Í bókinni er fjallað um möguleikana í framtíðinni, fjölbreytileika, að allir glíma við áskoranir og að við lærum á ólíkan hátt. Á bókasafninu eru til 5 eintök og einnig er hægt að nálgast bókina rafrænt. Þrír nemendur í 7. bekk tóku þátt í teiknisamkeppni í tengslum við bókina. Teikningar þeirra komust í hóp þeirra bestu og fengu þau  bók að gjöf. Þetta voru þau Aleksandra Staniszewska, Nökkvi Freyr Hjálmarsson og Vigdís Anna Sigurðardóttir öll í 7. bekk.