Giljaskóli fékk viðurkenningu sem réttindaskóli
Í gær, fimmtudaginn 19. nóvember hátíðardagur í Giljaskóla þegar skólinn fékk viðurkenningu fyrir áframhaldandi starf sitt sem réttindaskóli. Þessi mikilvæga viðurkenning staðfesti það góða starf sem unnið hefur verið í skólanum í þágu réttinda barna og lýðræðis.
Af þessu tilefni hittust nemendur og starfsmenn í íþróttahúsi skólans. Nemendur í réttindaráði höfðu veg og vanda af skipulagningu athafnarinnar. Unnur Helga kom á staðinn fyrir hönd UNICEF og afhenti nemendum í réttindaráði viðurkenninguna formlega við mikinn fögnuð viðstaddra.
Í tilefni dagsins var nemendum boðið upp á pizzu, franskar og djús. Stemningin í skólanum var frábær og greinilegt að nemendur og starfsfólk nutu þess að fagna þessum merka áfanga.
Viðurkenningin minnir okkur á mikilvægt þess að hlúa áfram að vellíðan, virðingu og réttindum barna í daglegu skólastarfi.