Giljaskóli er hnetulaus skóli

Í Giljaskóla eru nokkur börn með bráðaofnæmi fyrir hnetum og því mikilvægt að taka tillit til þeirra. Einstaklingur með bráðaofnæmi fyrir hnetum þarf ekki að borða hnetur til að fá ofnæmisviðbrögð. Nóg er að hann komist í snertingu við matvæli sem innihalda hnetur eða snertingu við einstakling sem hefur verið að meðhöndla hnetur til að valda mjög slæmum og lífshættulegum ofnæmisviðbrögðum.
Skólinn er því hnetulaus skóli frá og með 9.9 2019, sem þýðir að hvorki nemendur né starfsmenn koma með hnetur inn í skólann. Það sama gildir um t.d. bakkelsi á árshátíðum eða á bekkjarskemmtunum.
Við biðjum foreldra um að gæta þess að börnin komi ekki með nesti sem inniheldur hnetur (t.d. jarðhnetur, heslihnetur, valhnetur, kasjúhnetur, pekanhnetur og möndlur). Dæmi um slíkt er: hnetujógúrt, abt-mjólk með hnetumúsli, brauð með hnetusmjöri, hnetur í poka, alls kyns orkustykki, flestar tegundir af Corny, sumt morgunkorn og fleira.