Frambjóðendur til bæjarstjórnakostninga í heimsókn í 7.-10. bekk

Frambjóðendur flokkanna sem mættu í Giljaskóla.
Frambjóðendur flokkanna sem mættu í Giljaskóla.

Fulltrúar frá öllum þeim átta stjórnmálaflokkum sem eru í framboði í komandi bæjarstjórnarkosningum, hafa verið að fara í heimsóknir í grunnskóla bæjarins. Hugmyndin að þessum kynningum kemur frá umboðsmanni barna á Íslandi. Í Giljaskóla mættu fulltrúar frá öllum framboðum nema L- listanum og Akureyrarlistanum. Fulltrúunum gafst tækifæri til að kynna sig og flokk sinn. Fyrir fundinn fengu nemendur í réttindaráði tíma til að kíkja á stefnuyfirlýsingu flokkanna og undirbúa spurningar. Spyrill fyrir hönd nemenda var Aldís Ósk nemandi í 10 bekk sem er einnig fulltrúi í ungmennaráði. Nemendur komu með vel ígrundaðar og margar hverjar krefjandi spurningar sem snerta bæði bæjarmál, nærumhverfi, atvinnumál ungmenna og menntamál í bænum. Eins var lagt fyrir þau já og nei hraðaspurningar. Eftir umræðurnar voru haldnar kosningar í 7.-10 bekk þar sem nemendur gátu kosið þann flokk sem þeim leist best á. 

Nemendur lærðu mikið af undirbúningnum, fundinum og efldu skilning sinn á stjórnmálum, á meðan fulltrúar stjórnmálaflokkanna höfðu orð á því hversu mikilvægt væri að hlusta á skoðanir ungmenna í bænum.