Forritun í Giljaskóla með styrk frá Forriturum framtíðarinnar

Giljaskóli hefur að undanförnu lagt aukna áherslu á menntun í upplýsingatækni og það að nýta möguleika tæknilegra lausna til að auka gæði náms nemenda skólans.  

Í vor hlaut skólinn styrk frá forriturum framtíðarinnar til kaupa á ýmsum tækjum til forritunar- og tæknikennslu, en meginhlutverk sjóðsins er að efla forritunar- og tæknimenntun í grunn- og framhaldsskólum landsins. Giljaskóli hlaut 200.000 króna styrk og þakkar Forriturum framtíðarinnar innilega fyrir veittan stuðning.

Styrkurinn var nýttur til kaupa á Lego WeDo 2.0 en þar fá nemendur tækifæri til að læra undirstöðuna í forritun og ýmislegt um vélbúnað. Nemendur byggja og forrita auðveldar vélar, sem tengjast við tölvu. Einnig voru keyptir drónar, sem taka myndir og myndbönd og Osmo forritunarleikurinn Detective Agency.