Felix Bergsson með kynningu á nýju bókinni sinni

Í dag fengu nemendur í 5., 6., og 7. bekk rithöfund í heimsókn. Að þessu sinni kom Felix Bergsson í heimsókn og kynnti nýju bókina sína sem heitir ,, Leynifélag í lífsháska"

Nemendur skemmtu sér konunglega, hlustuðu vel á valdar blaðsíður úr bókinni sem Felix las fyrir þau og svo endaði kynningin á því að sungin voru tvö lög.