Nordplus verkefni

Síðasta vetur tók Giljaskóli þátt í Nordplus verkefni með eistneskum skóla þar sem að 30 manna hópur frá Giljaskóla heimsótti Eistland haustið 2025 og komu Eistarnir til okkar í vor. Krakkarnir unnu fjölbreytt verkefni saman sem tengdust samfélagsmiðlum og netnotkun. Verkefnið hlaut styrk úr Nordplus Junior-áætlun Norrænu ráðherranefndarinnar.

 

Markmið verkefnisins er að styrkja getu ungs fólks til að takast á við áskoranir stafrænnar tækni og stuðla að ábyrgri hegðun á netinu. Í gegnum verkefnið lærðu nemendur að:

- þróa færni í að leita að, vinna úr og greina stafrænar upplýsingar.

- læra að þekkja áhættuþætti varðandi heilsu, öryggi og persónuvernd sem tengjast notkun stafrænnar tækni.

- nýta netumhverfið á ábyrgan hátt til að skapa og miðla stafrænu efni.

 

Haldnir voru fjórir fundir í gegnum fjarfundabúnað þar sem 60 nemendur frá löndunum tveimur löndum unnu saman í mismunandi hópum undir leiðsögn kennara. Umræður beindust að efnisatriðum á borð við fíkn í snjallsíma, stafræna tækni og löggjöf, auk forvarna gegn hatursorðræðu.