Dagur íslenskrar tungu haldinn hátíðlegur í Giljaskóla

Í dag, 16. nóvember, var Dagur íslenskrar tungu haldinn hátíðlegur í Giljaskóla með fjölbreyttri og skemmtilegri dagskrá þar sem nemendur komu saman til að fagna íslenskri tungu og menningararfi okkar.

Nemendur í 1. til 6. bekk söfnuðust saman á sal skólans þar sem dagskráin hófst á því að nemendur í 4. bekk lásu upp fróðleik um skáldið og náttúrufræðinginn Jónas Hallgrímsson, en fæðingardagur hans er jafnframt dagur íslenskrar tungu. Nemendur í 3. bekk voru forsöngvarar í laginu Á íslensku má alltaf finna svar og tóku allir viðstaddir undir af miklum krafti. Margrét Óla lék undir á harmonikku og skapaði skemmtilega stemningu. Að lokum sungu nemendur lagið Eitt af blómunum við undirleik Erlings Viðarssonar.

Nemendur í 7. til 10. bekk söfnuðust einnig saman á sal skólans og byrjaði Elías skólastjóri á því að ræða um mikilvægi móðurmálsins okkar og sett setti síðan Stóru upplestrarkeppnina, Upphátt. Þar á eftir komu nemendur úr 10. bekk og fræddu okkur um Jónas Hallgrímsson. Að lokum var lagið Eitt af blómunum sungið við undirleik Erlings Viðarssonar.

Dagskráin heppnaðist afar vel og sýndu nemendur bæði áhuga og metnað í þátttöku sinni.