Dagur Guðnason í 6.AR hlaut annað sæti í yngri flokki Siljunnar 2018

Annað sætið í yngri flokki Siljunnar 2018 hlaut Dagur Guðnason fyrir myndband um bókina Af hverju ég? eftir Hjalta Halldórsson. Dómnefndin sagði: „Einkar metnaðarfull textasmíði og gaman að sjá öðruvísi nálgun að viðfangsefninu.“ Siljan er myndbandakeppni í grunnskólum landsins þar sem nemendur kynna nýútkomnar barna- og unglingabækur. Við óskum Degi innilega til hamingju með þetta góða myndband sem sjá má hér.