Árshátíð Giljaskóla 25. og 26. nóvember 2026

Nú stendur árshátíð Giljaskóla fyrir dyrum. Árshátíðir nemenda verða haldnar í íþróttasal skólans miðvikudaginn 25. nóvember og          fimmtudaginn 26. nóvember.

Aðgangseyrir er 500 krónur fyrir fullorðna og gesti. Nemendur í Giljaskóla og yngri börn borga ekki aðgangseyri. Selt er inn við innganginn í íþróttahúsinu. Það verða posar á staðnum. Aðgangseyrinn skiptist á milli sérdeildar og 1. - 9. bekkjar og er nýttur til vorfagnaða/ vorferða.

Ferðasjóður 10. bekkjar er að safna fyrir skólaferðalagi og stendur fyrir vöffl ukaffi að sýningum loknum. Vöffl ukaffi kr: 1000 posi á staðnum (frítt fyrir börn á leikskólaaldri).

Foreldrasýningar í íþróttasal Giljaskóla verða sem hér segir; miðvikudagur 25. nóv.

Miðvikudagur 25. nóvember kl. 16:00 sýna: Sérdeild, 1. bekkur og 2. bekkur

Miðvikudagur 25. nóvember kl. 17:00 sýna: Sérdeild, 7. bekkur og 8. Bekkur

Miðvikudagur 25. nóvember kl. 18:00 sýna: Stuttmyndasýning 9. og 10. bekk

Foreldrasýningar í íþróttasal Giljaskóla verða sem hér segir; fimmtudagur 26. nóv.

Fimmtudagur 26. nóvember kl. 16:00 sýna: Sérdeild, 3. bekkur og 4. bekkur

Fimmtudagur 26. nóvember kl. 17:00 sýna: Sérdeild, 5. bekkur og 6. Bekkur

Árgangarnir sýna í heilu lagi og munu foreldrar fá nánari upplýsingar frá umsjónarkennurum varðandi mætingu nemenda í skólann fyrir foreldrasýningar. Myndband frá nemendum sérdeildar verður sýnt 25. nóvember og 26. nóvember á öllum sýningum.

Sýningar nemenda munu taka um það bil hálfa klukkustund og verður kaffi sala eftir hverja sýningu á vegum 10. bekkjar í matsal skólans til styrktar ferðasjóði bekkjarins. Við vonum að allir sjái sér fært að mæta og eiga góða stund í skólanum með börnum sínum. Þess má geta að nákomnir ættingjar eru líka velkomnir. Vinsamlegast virðið að það þarf að vera næði í salnum svo allir njóti sýningarinnar bæði nemendur sem eru að sýna á sviði og eins áhorfendur sem vilja geta notið þess að fylgjast með sýningunni.

Gætið þess að börn ykkar séu ekki hlaupandi um salinn á meðan á sýningum stendur.

Kær kveðja og góða skemmtun,

starfsfólk Giljaskóla