Árshátíð Giljaskóla

Árshátíðir nemenda verða haldnar í íþróttasal skólans þriðjudaginn 21. mars, miðvikudaginn 22. mars og fimmtudaginn 23. mars kl. 17:00. 

Aðgangseyrir er 500 krónur fyrir fullorðna og gesti. Nemendur í Giljaskóla og yngri börn borga ekki aðgangseyri. Selt er inn við innganginn í íþróttahúsinu. Það verða posar á staðnum.

Aðgangseyririnn skiptist á milli sérdeildar og 1. - 9. bekkja og er nýttur til vorfagnaða. 

Foreldrasýningar í íþróttasal Giljaskóla verða sem hér segir;

Þriðjudag 21. mars kl. 17:00 sýning stuttmynda nemenda í 8. - 10. bekk; afrakstur stuttmyndadaga.

Miðvikudag 22. mars kl. 17:00 sýna: Sérdeild, 2. bekkur, 4. bekkur og 5. - 7. bekkur.   Fimmtudag  23. mars kl. 17:00 sýna: Sérdeild, 1. bekkur, 3. bekkur og 5. - 7. bekkur.  

Árgangarnir sýna ýmist í heilu lagi eða tvískipt og munu foreldrar fá nánari upplýsingar frá umsjónarkennurum um það á hvorri sýningunni börn þeirra sýna. Myndband frá nemendum sérdeildar verður sýnt á báðum sýningum. 

Sýningar nemenda munu taka um það bil eina klukkustund. 

Sjoppa verður opin í íþróttasalnum á stuttmyndasýningunni þriðjudaginn 21. mars en að loknum sýningum 22. og 23. mars verður kaffisala á vegum 10. bekkjar í sal skólans til styrktar ferðasjóði bekkjarins.

Kaffi og meðlæti kostar 1500 krónur fyrir fullorðna og nemendur í 8. - 10. bekk, 500 krónur fyrir nemendur í 1. - 7. bekk og yngri börn fá frítt. 

Árshátíðarball fyrir nemendur í 7. - 10. bekk verður miðvikudagskvöldið 19 . apríl (síðasta vetrardag). 

Nánar auglýst síðar. 

Við vonum að allir sjái sér fært að mæta og eiga góða stund í skólanum með börnum sínum.