Heilsugæsla

Hlutverk heilsugæslu í skólum er að sinna heilsuvernd nemenda og hún er framhald ung- og smábarnaverndar.  Starfsemi skólaheilsugæslu er skv. lögum,

Heilsugæsla

Hlutverk heilsugæslu í skólum er að sinna heilsuvernd nemenda og hún er framhald ung- og smábarnaverndar.  Starfsemi skólaheilsugæslu er skv. lögum, reglugerðum og tilmælum er um hana gilda.  Hún er meðal annars fólgin reglubundnum skimunum og eftirliti, ónæmisaðgerðum, heilbrigðisfræðslu og teymisvinnu kringum einstaka mál.

Hver skóli hefur skólahjúkrunarfræðing og skólalækni jafnframt því sem hvert barn hefur sinn heimilislækni.  Heilsugæslu í grunnskólum Akureyrar er sinnt af hjúkrunarfræðingum og læknum frá Heilsugæslustöðinni á Akureyri.

Hjúkrunarfræðingur Giljaskóla er Hugrún Ósk Ágústsdóttir í 60% stöðu og skólalæknir er Þórir V. Þórisson.

Markmiðið með heilsugæslu í skólum er að stuðla að því að börn fái að þroskast við þau bestu andlegu, líkamlegu skilyrði sem völ er á.  Til þess að vinna að markmiði þessu er fylgst með börnunum svo að frávik finnist og viðeigandi ráðstafanir verði gerðar sem fyrst.  Áherslan er lögð á að fyrst og fremst beri foreldrar ábyrgð á heilsu og þroska barna sinna, en starfslið heilsugæslu í skólum fræði, hvetji og styðji foreldra í hlutverki sínu.  Á heimasíðu Miðstöðvar heisluverndar barna http://www.heilsugaeslan.is/?PageID=24 má finna nánari upplýsingar um heilsugæslu í skólum og ráðleggingar til foreldra um heilbrigðistengd málefni.

Fræðsla og heilsuefling heilsuverndar skólabarna byggir á hugmyndafræðinni um 6-H heilsunnar sem er samstarfsverkefni skólaheilsugæslunnar og Lýðheilsustöðvar.  Eftir fræðslu fær barnið fréttabréf með sér heim.  Þá gefst foreldrum kostur á að ræða við börnin um það sem þau lærðu.

Slys og óhöpp á skólatíma
Það er ekki hlutverk skólahjúkrunarfræðings að vera með slysamóttöku í skólanum.  Skólahjúkrunarfræðingur veitir fyrstu hjálp þegar alvarlegri slys verða í skólanum og er starfsfólki skólans til stuðnings og ráðgjafar þegar upp koma veikindi og slys hjá nemendum, á þeim tíma sem hjúkrunarfræðingur er við störf.

Ef smáslys eða óhapp verður á skólatíma sér starfsfólk skólans um fyrstu hjálp.

Þurfi nemandi að fara á heilsugæslustöð eða slysadeild skulu foreldrar/forráðamenn fara með barninu.  Því er mikilvægt að skólinn hafi öll símanúmer þar sem hægt er að ná í foreldra/forráðamenn á skólatíma barnsins.

Ekki er ætlast til að óhöppum sem gerast utan skólatíma sé sinnt af skólaheilsugæslunni.  Foreldrum er bent á að snúa sér til heimilislæknis og Heilsugæslustöðvarinnar á Akureyri með heilsufarsmál sem ekki teljast til skólaheilsugæslu.

Samstarf mikilvægt

Foreldrar/forráðamenn bera ábyrgð á líðan og heilbrigði barna sinna.  Góð samvinna og gott upplýsingaflæði er mikilvægt til að starfsfólk skólaheilsugæslu geti sinnt starfi sínu sem best.  Því eru foreldrar hvattir til að hafa samband við hjúkrunarfræðing skólans ef einhverjar breytingar verða hjá barninu sem gætu haft áhrif á andlegt, líkamlegt eða félagslegt heilbrigði þess.  Að sjálfsögðu er fyllsta trúnaðar gætt um mál einstakra nemenda.

Vilji foreldrar/forráðamenn fá upplýsingar um einstök atriði, hvað varðar heilsugæsluna er þeim velkomið að hafa samband við hjúkrunarfræðinginn.

Ef foreldrar/forráðamenn vilja ekki að börn þeirra taki þátt í einhverju af því sem skólaheilsugæslan bíður nemendum upp á, eru þeir beðnir um að hafa samband við skólahjúkrunarfræðing sem fyrst.  Ef ekkert heyrist frá foreldrum verður það skoðað sem samþykki.

Lyfjagjafir í skólum
Í tilmælum frá landlækni um lyfjagjafir í grunnskólum, dreifibréf nr. 7/2010 kemur meðal annars fram að foreldrum/forráðamönnum ber að afhenda hjúkrunarfræðingum þau lyf sem börn/unglingar eigi að fá í skólanum og að börn/unglingar skuli aldrei vera sendiboðar með lyf.  Sjá nánari upplýsingar á  http://www.landlaeknir.is/?PageID=350

Foreldrar/forráðamenn þeirra barna/unglinga sem þurfa að taka lyf á skólatíma eru vinsamlega beðnir að hafa samband við hjúkrunarfræðing skólans til skrafs og ráðagerða um hvernig best verði komið til móts við þessi tilmæli.

Lús
Við viljum minna fólk á að skoða reglulega hár barna sinna og láta skólahjúkrunarfræðing vita ef lús finnst.  Nánari upplýsingar um lúsina er að finna á http://www.heilsugaeslan.is/?PageID=2047 og http://www.landlaeknir.is/?PageID=831

 

Dagatal

« Febrúar 2012 »
SMÞMFFL
 1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829 

Á næstunni

Engir viðburðir á næstunni

Mynd augnabliksins

Giljaskóli | v/Kiðagil | 603 Akureyri | 462 4820 | giljaskoli@akureyri.is | Vistun 462 4825