Flýtilyklar
Börn í fjarlćgum löndum
Gjöf frá nemendum Giljaskóla
Hópur nemenda í 10. bekk sem varð í 3. sæti í Best stærðfræðikeppninni í fyrra vildi að börnin sem við styrkjum í gegnum ABC hjálparstarf fengi afganginn af verðlaunaféinu. Þau voru búin að fara út að borða og eftir voru 7000 krónur sem renna í söfnunina okkar!
Þakkir til þeirra!
Skólahlaupið 2010
Hlaupið var þann 8. september klukkan 10.00. Nemendur og starfsfólk hljóp og gekk í góða veðrinu einn til fjóra “skólahringi” en hver hringur er um 2,5 km. Sjónvarpsstöðin N4 mætti á staðinn og fylgdist með, http://www.n4.is/tube/file/view/1226/. Söfunin gekk mjög vel og söfnuðust krónur 75.894,- Það kostar krónur 76.800 að styrkja börnin tvö og það kom sér vel að eiga smá afgang frá því í fyrra. Á heimasíðu ABC barnahjálp er frétt um skólahlaupið og söfnunina sem við höfum nú staðið fyrir fjórum sinnum, sjá http://www.abc.is/
Skólahlaupið 2010
Í ár stefnum við að því að hlaupa skólahlaupið þann 8. september klukkan 10.00. Samhliða því munum við safna fé til
styrktar krökkunum sem við styðjum í gegnum ABC hjálparstarf. Í fyrra kostaði krónur 76.800 að styrkja börnin tvö og vonum við að
við getum haldið áfram að styðja tvö börn.
Jólin 2009
Krakkar í 3. og 8. bekk teiknuðu myndir handa þeim og ásamt þeim sendum við þeim bók um íslensk tröll.
Skólahlaupið 2009
Hlaupið var þann 9. september, eða 09.09.09! Veðrið lék við okkur og hlupu krakkarnir einn til fjóra “skólahringi”, en einn hringur er um 2
km. Söfunin gekk vonum framar og söfnuðust krónur 89.529.
Jólin 2008
Nemendur skólans sem eru jafngamlir Udaya og Vincent teiknuðu myndir handa þeim. Það voru nemendur í 3. og 8. bekk. Einnig sendum við þeim myndabók
um Akureyri, kort af bænum okkar og Íslandskort.
Skólahlaupið 2008
Ákveðið var að endurtaka leikinn frá því í fyrra og sameina Norræna skólahlaupið og áheita hlaup fyrir börnin okkar tvö
sem við styðjum í Úganda og Indlandi. Í ár söfnuðust krónur 71.722 og gátum við því styrkt þau annað ár.
Við höfum fengið myndir af þeim og vaxa þau og dafna vel.
Í skólahlaupinu þann 12. september 2007 söfnuðu nemendur og starfsfólk Giljaskóla nærri 80.000,- krónum. Ákveðið var að styrkja tvö börn sem lifa við bágar aðstæður í fjarlægum löndum. Nú hefur skólinn “eignast” tvö börn og vonandi getum við með framlagi okkar bætt aðstæður þessara barna. Þetta eru ein stelpa og einn strákur, á sitt hvorum aldri og eiga þau heima í sitt hvoru landinu.
Udaya Lakshmi Gajjelagunta er 12 ára gömul stelpa sem býr á Indlandi. Hún er fædd þann 18. febrúar árið 1995.
Hún er svo heppin að eiga bæði mömmu og pabba á lífi og einnig á hún einn bróður. Fjölskyldan hennar býr í kofa sem
er búinn til úr leir og bambus með stráþaki og moldargólfi. Þar er ekkert rafmagn og hvorki klósett né rennandi vatn. Kofinn er aðeins
eitt herbergi og þar sofa allir á gólfinu án ábreiðu og flugnanets. Matinn þurfa þau að elda úti og þau þurfa að ganga tvo
kílómetra til að ná í vatn. Udaya fékk oft malaríu, fékk lítið að borða og gekk af og til í skóla.
Núna býr Udaya á Heimili litlu ljósanna sökum þess hve fátækir foreldrar hennar eru. Henni líður mun betur, er frískari,
fær mat á hverjum degi og gengur í skóla.
Með framlagi okkar borgum við fyrir menntun og framfærslu á Heimili litlu ljósanna sem staðsett er í Gannavaram á suð-austurströnd Indlands.
Hér getið þið séð myndir og annað frá Heimili litlu ljósanna þar sem Udaya býr.
Vincent Obita er 7 ára gamall strákur sem býr í Úganda. Hann er fæddur þann 3. júlí árið 2000. Hann
býr hjá foreldrum sínum, tveimur bræðrum og einni systur. Hann er yngstur systkinanna og fjölskyldan er mjög fátæk. Þó hann hafi
liðið skort er hann heilsuhraustur en í Úganda eru sjúkdómar eins og eyðni, kólera, berklar og ýmsir magasjúkdómar mjög
algengir. Fjölskyldan býr í litlum leirkofa með stráþaki og fær mat frá Sameinuðu Þjóðunum á hverjum degi, aðallega
maís og baunir. Þau þurfa að sækja vatn í borholu og getur það tekið allt að 4-5 tíma.
Með framlagi okkar borgum við fyrir skólagöngu hans, læknishjálp og eina máltíð á dag.
Hér getið þið séð myndir og annað frá Rackoko - Pader héraði þar sem Vincent býr.
Við í Giljaskóla höfum hug á því að gera skólahlaupið að árlegu áheitahlaupi til þess m.a. að halda áfram að styrkja börnin okkar og gera jafnvel eitthvað meira. Það er trú okkar að með þessu séum við að sá fræum til nemenda Giljaskóla um að við þurfum að hugsa um minnstu bræður okkar í fjarlægum löndum. Þau koma okkur við og við getum haft áhrif þó við búum á hinu kalda Íslandi. Margt smátt gerir eitt stórt.


Leit
Á nćstunni
Mynd augnabliksins
Nýtt á vefnum
- Foreldranámskeiđ fyrir foreldra barna međ ofvirkni og/eđa athyglibrest
- Árshátíđ kl. 17:00 sýna 2. GS, 3. TB, 4. VD, 5. bekkur, 6. UV og 7. AH
- Árshátíđ kl. 17:00. 1. bekkur, 2. LS, 3. EE, 4.SLR, 6. KMŢ og 7. RK og sérdeild
- Árshátíđ nemenda í 8.-10. bekk kl. 17:00, sýning stuttmynda
- Árshátíđ
- Efni frá nemendum